Sigurður Ingi leiðir lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi
Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra, leiðir lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi í næstu Alþingiskosningum. Þetta var samþykkt á fjölmennu kjördæmisþingi Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi sem haldið var í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli um helgina.
„Glæsilegur listi sem ég hef mikla trú á. Ég myndi segja að reynsla og þor væri það sem einkenndi okkar lista. Við erum tilbúin að takast á við verkefnin framundan og þær áskoranir sem bíða okkar. Verkefnin eru ærin.” sagði Sigurður Ingi Jóhannsson eftir að listinn var samþykktur.
Framboðslisti Framsóknar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 28. október 2017
1. Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður, Hrunamannahreppi
2. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ
3. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarstjóri, Hornafirði
4. Jóhann Friðrik Friðriksson, lýðheilsufræðingur, Reykjanesbæ
5. Sæbjörg Erlingsdóttir, sálfræðinemi, Grindavík
6. Inga Jara Jónsdóttir, nemi, Árborg
7. Pálmi Sævar Þórðarson, bifvélavirki, Rangárþingi ytra
8. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, verkfræðingur, Hornafirði
9. Lára Skæringsdóttir, grunnskólakennari, Vestmannaeyjum
10. Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri, Hveragerði
11. Stefán Geirsson, bóndi, Flóahreppi
12. Jón H. Sigurðsson, lögreglufulltrúi, Reykjanesbæ
13. Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri, Ölfusi
14. Ármann Friðriksson, nemi, Hornafirði
15. Valgeir Ómar Jónsson, sagnfræðingur, Árborg
16. Sigrún Þórarinsdóttir, bóndi, Rangárþingi eystra
17. Jóhannes Gissurarson, bóndi, Skaftárhreppi
18. Jóngeir Hlinason, hagfræðingur og bæjarfulltrúi, Vogum
19. Haraldur Einarsson, fyrrv. alþingismaður, Flóahreppi
20. Páll Jóhann Pálsson, fyrrv. alþingismaður, Grindavík