Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sigurður Ingi býður sig fram í efsta sæti Framsóknar í Suðurkjördæmi
Fimmtudagur 12. febrúar 2009 kl. 15:14

Sigurður Ingi býður sig fram í efsta sæti Framsóknar í Suðurkjördæmi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til forystu á lista Framsóknarflokksins Í Suðurkjördæmi.


Sigurður Ingi hefur lengi tekið virkan þátt í starfi Framsóknarflokksins. Jafnframt hefur hann setið í sveitarstjórn Hrunamannahrepps í 15 ár í vor, þar af sjö ár sem oddviti og 4 ár sem varaoddviti.


Sigurður Ingi hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarmálum og tekur virkan þátt í  pólitísku starfi sveitarfélaga á Suðurlandi með setu í ýmsum stjórnum og nefndum.
Með óbilandi trú á gildum Framsóknarflokksins, vill Sigurður Ingi  leggja sitt af mörkum í því mikla uppbyggingarstarfi sem framundan er á Íslandi. Það starf krefst óeigingirni, heiðarleika, dugnaðar og skynsemi.  Með framboði sínu leggur Sigurður Ingi í það starf, fram krafta sína, reynslu og þekkingu á stjórnmálum.


Sigurður Ingi er dýralæknir og einn af eigendum og starfsmönnum Dýralæknaþjónustu Suðurlands. Hann  býr í Syðra – Langholti, Hrunamannahreppi, fæddur og uppalinn Árnesingur. Sambýliskona hans er Elsa Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri,  og eiga þau samtals 5 börn.