Sigrún og Samúel til Kadeco
Kadeco hefur ráðið þau Sigrúnu Ingu Ævarsdóttur og Samúel Torfa Pétursson og hafa þau þegar hafið störf.
Sigrún Inga stýrir viðskipta- og markaðsmálum hjá Kadeco. Hún kemur frá Isavia þar sem hún starfaði sem deildarstjóri samgöngu- og fasteignatekna á Keflavíkurflugvelli og þar áður sem lögfræðingur viðskiptasviðs og sérfræðingur í viðskiptaþróun. Sigrún er með BA og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og situr í núverandi stjórnum Awarego og Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi.
Samúel Torfi hefur u.þ.b. 20 ára reynslu af fjölbreyttum verkefnum á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Hann er nýr þróunarstjóri Kadeco en starfaði áður sem ráðgjafi á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf. Samúel hefur sömuleiðis starfað við fasteignaþróun hjá Klasa og hjá Þyrpingu og við verkfræðiráðgjöf í skipulagi og samgöngum hjá Ramböll í Danmörku og hjá Línuhönnun, nú Eflu. Samúel er með M.Sc. í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku.
„Það er mikill fengur í því að fá þau Sigrúnu og Samúel til liðs við okkur. Undanfarin ár hafa verið sérstaklega viðburðarík hjá Kadeco þar sem við lítum til framtíðar við þróun landssvæðisins umhverfis Keflavíkurflugvöll. Þar liggja ótal tækifæri og við erum mjög lánsöm að fá svona öflugt fólk til liðs við okkur í komandi verkefnum,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Um Kadeco:
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hefur það að meginmarkmiði að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.
Kadeco stóð árið 2021 fyrir samkeppnisútboði um þróunaráætlun fyrir nærsvæði Keflavíkurflugvallar. Mikill áhugi var á samkeppnisútboðinu og alls sóttu 25 teymi víða að úr heiminum eftir að taka þátt í forvali. Útboðið var m.a. tilnefnt voru til bresku verðlaunanna The Lawyer Awards 2022. Úrslitatillögurnar þóttu allar mjög góðar en dómnefnd skipuð innlendum og erlendum aðilum valdi að lokum tillögu KCAP-teymisins. Frá því valin var vinningstillaga í lok árs 2021 hefur Kadeco unnið með KCAP að gerð þróunaráætlunar en lokaafurðin verður kynnt opinberlega á næstu dögum.