Fréttir

Sigríður verður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður fyrsta konan sem gegnir embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.
Fimmtudagur 24. júlí 2014 kl. 15:15

Sigríður verður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu

Ólafur Helgi Kjartansson tekur við á Suðurnesjum

Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður fyrsta konan sem gegnir embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Sigríður hefur frá árinu 2009 gegnt sama embætti á Suðurnesjum. Hún var aðstoðarríkislögreglustjóri á árunum 2007-2008, sýslumaður á Ísafirði 2002-2006 og þar áður skattstjóri Vestfjarðaumdæmis. Ólafur Helgi Kjartansson hefur verið skipaður í embættið á Suðurnesjum í stað Sigríðar.

Í gær var greint frá því að sýslumaðurinn í Keflavík tæki við við embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu.

Public deli
Public deli

Þá hefur ráðherra í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti lögreglustjóra í nýjum umdæmum. Samkvæmt nýjum lögum verður lögregluumdæmum fækkað úr 15 í níu og mun breytingin taka gildi um næstu áramót.

Skipan í embætti lögreglustjóra verður sem hér segir:

• Lögreglustjóri á Suðurlandi: Kjartan Þorkelsson.
• Lögreglustjóri á Austurlandi: Inger L. Jónsdóttir.
• Lögreglustjóri á Norðurlandi eystra: Halla Bergþóra Björnsdóttir.
• Lögreglustjóri á Norðurlandi vestra: Páll Björnsson.
• Lögreglustjóri á Vesturlandi: Úlfar Lúðvíksson.
• Lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu: Sigríður Björk Guðjónsdóttir.
• Lögreglustjóri á Suðurnesjum: Ólafur Helgi Kjartansson.

„Efling löggæslunnar hefur verið eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar en með þessum breytingum verða til færri en um leið öflugri embætti. Minni yfirbygging, fjölbreyttur og sterkur hópur löggæslufólks, tækniframfarir og bættur búnaður lögreglu stuðlar að því að starfsemi lögreglunnar innan umdæma verði skipulögð með markvissari hætti. Ég býð nýskipaða lögreglustjóra velkomna til starfa og er þess fullviss að þeir muni leggja sitt af mörkum við að tryggja öryggi almennings og öfluga þjónustu á hverjum stað,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.