Sigríður Bryndís sýnir í Listatorgi
Laugardaginn 14.júní klukkan 14:00 opnar Sigríður Bryndís Sigurjónsdóttir listakona frá Reykjanesvita fyrstu einkasýningu sína í Listatorgi Sandgerðisbæ.
Sigga er fædd 1948 og ólst upp í 14 systkinahópi að Reykjanesvita. Hún hefur verið að mála myndir síðan árið 1999. „Kolbrún Vídalín listakona hvatti mig það ár til að koma á námskeið hjá sér í Sandgerði en ég sagðist ekki kunna neitt að mála, hvað þá teikna. Ég fór nú samt hálfrög og með góðri tilsögn Kollu þá tókst mér að opna fyrir listakonuna í mér. Ég hef þrisvar sinnum verið á námskeiði hjá henni. Í dag mála ég myndir mér til gamans og stundum er ég svo hissa þegar ég er að setja mig í stellingar og byrja á mynd, því þá flæðir myndin bara fram. Ég mála mest landslagsmyndir, náttúran er mér öll svo kær og þá sérstaklega umhverfið í kringum Reykjanesvita og á Suðurnesjum. Jöklar og fossar á Íslandi heilla mig einnig," segir Sigga.
Eftir að Sigga fór að mála myndir segist hún sjá náttúruna í allt öðru ljósi þegar hún ferðast um landið. Nú er umhverfið innblástur að listaverki.
Allir eru hjartanlega velkomnir að vera viðstaddir opnun listasýningar Siggu klukkan tvö á laugardaginn.
Sýningin í Listatorgi stendur til 30.júní. Opið er alla daga frá klukkan 13-17.