Uppbyggingarsjóður 2026
Uppbyggingarsjóður 2026

Fréttir

Sigríður Björk líklega sett lögreglustjóri
Fimmtudagur 25. september 2008 kl. 15:06

Sigríður Björk líklega sett lögreglustjóri



Dómsmálaráðherra mun líklegast setja Sigríði Björk Guðjónsdóttur aðstoðarríkislögreglustjóra tímabundið í starf lögreglustjórans á Suðurnesjum við brotthvarf Jóhanns R. Benediktssonar, samkvæmt heimildum Vísis.is sem greinir frá þessu.


Heimildir Vísis herma að Sigríður Björk verði sett til þess að gegna embættinu tímabundið. Það verði svo auglýst laust til umsóknar í fyllingu tímans.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þarf að auglýsa laus störf með tveggja vikna fyrirvara áður en að skipað er í starfið. Hins vegar má setja mann til að gegna starfinu tímabundið.


Sigríður Björk var skipuð aðstoðarríkislögreglustjóri í desember 2006, en áður var hún sýslumaður á Ísafirði. Hún er eiginkona  Skúla S. Ólafssonar, sóknarprests í Keflavíkurprestakalli.




Mynd/visir.is: Sigríður Björk Guðjónsdóttir.



Tengd frétt:


Verður Sigríður Björk næsti lögreglustjóri?

Bílakjarninn
Bílakjarninn