Fréttir

Sigga Dögg er framúrskarandi ungur Íslendingur
Föstudagur 20. maí 2016 kl. 14:32

Sigga Dögg er framúrskarandi ungur Íslendingur

Ein af tíu sem eru tilnefnd af JCI

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 14. skiptið. Að þessu sinni en Sigríður Dögg Arnardóttir úr Reykjanesbæ á meðal þeirra tíu tilnefndu. Sigríður en kannski betur þekkt sem Sigga Dögg kynfræðingur, en hún hefur m.a. staðið fyrir aukinni kynfræðslu í skólum landsins. Guðmundur Stefán Gunnarsson júdóþjálfari úr Reykjanesbæ hlaut verðlaunin árið 2013. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson var einn af verðlaunahöfum árið 2006.

Um tvö hundruð tilnefningar bárust frá almenningi í ár en dómnefnd hefur haft það erfiða verkefni undanfarna daga að velja þar úr tíu framúrskarandi einstaklinga. Af þessum tíu hefur dómnefnd jafnframt valið einn verðlaunahafa. Það verður því spennandi að sjá hver hlýtur verðlaunin í ár en forseti Íslands mun afhenda þau þriðjudaginn 24. maí næstkomandi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Verðlaunin, sem eru smátt og smátt að skipa sér fastan sess í íslensku þjóðlífi, eru hugsuð sem hvatningarverðlaun ásamt því að vekja athygli á ungu fólki á aldrinum 18- 40 ára sem starfar af eldmóð, heildinum og ósérhlífni án þess endilega að hafa hlotið athygli almennings.

Topp tíu hópinn í ár skipa:

• Arna Sigríður Albertsdóttir
Einstaklingssigrar og/eða afrek
• Búi Bjarmar Aðalsteinsson
Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði
• Elín Edda Sigurðardóttir
Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræða
• Jón Margeir Sverrisson
Einstaklingssigrar og/eða afrek
• Kristín Þorsteinsdóttir
Einstaklingssigrar og/eða afrek
• Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræða
• Sigríður Dögg Arnardóttir
Leiðtogar/afrek á sviði menntamála
• Tara Ösp Tjörvadóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
• Tyrfingur Tyrfingsson
Störf /afrek á sviði menningar.
• Þórunn Ólafsdóttir
Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála