Síðustu sýningar á Vodkakúrnum
Nú fer hver að verða síðast að sjá Vodkakúrinn því um helgina eru síðustu sýningar á Suðurnesjum á Vodkakúrnum með þeim Helgu Brögu Jónsdóttur og Steini Ármanni Magnússyni í aðalhlutverkum. Sýningin hefur hlotið mikið lof þeirra sem séð hafa og því síðustu forvöð að skella sér í leikhús og hlæja svolítið. Næsta sýning er í kvöld laugardaginn 18. sept og sunnudaginn 19. september. Miðasalan er opin frá klukkan 16.00 frá og með deginum í dag, fimmtudag 16. september og til kl: 20.00 sýningardagana. Miðasalan fer fram í Frumleikhúsinu Vesturbraut 17. Miðasölusíminn er: 421-2540.
Myndin: Steinn Ármann og Helga Braga í hlutverkum sínum í Vodkakúrnum.