Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fréttir

Síðasti dagur til að tilnefna fjölskylduvæn fyrirtæki
Miðvikudagur 27. janúar 2010 kl. 16:41

Síðasti dagur til að tilnefna fjölskylduvæn fyrirtæki

Í fjölskyldustefnu Reykjanesbæjar er kveðið á um að árlega skuli veittar viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtæka í Reykjanesbæ. Með því vill Reykjanesbær hvetja stjórnendur tyrirtækja til að setja sér fjölskyldustefnu. Þetta er í áttunda sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar og hafa fjölmörg fyrirtæki þegar hlotið nafnbótina "fjölskylduvænt fyrirtæki".

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept


Óskað er eftir tilnefningum frá starfsmönnum fyrirtækja sem telja sinn vinnustað fjölskylduvænan. Rökstuðningur og fjölskyldustefna fyrirtækisins þarf að fylgja með tilnefningunni.


Fjölskyldu- og félagsmálaráð fer yfir tilnefningar og viðurkenningar verða veittar á degi um málefni fjölskyldunnar sem haldinn er þann 27. febrúar nk. í Íþróttaakademíunni.


Tilnefningar þurfa að hafa borist fyrir 27. janúar, sem er í dag, til Fjölskyldu- og félagssviðs Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, merktar FJÖLSKYLDUVÆN FYRIRTÆKI. ?

Einnig er hægt að senda inn tilnefningu með því að smella á hlekkinn hér!

Bílakjarninn
Bílakjarninn