Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Síðasta þyrlan fór í morgun: Markar endalokin á starfsemi VL á Íslandi
Þriðjudagur 19. september 2006 kl. 13:09

Síðasta þyrlan fór í morgun: Markar endalokin á starfsemi VL á Íslandi

Segja má að dagurinn í dag marki endalokin á starfsemi bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli því síðustu þyrlunni á hans vegum hér á landi var nú fyrir hádegið komið fyrir í stórri flutningavél sem flaug með hana til Englands.

Það var því söguleg stund á Keflavíkurflugvelli í morgun því hér með er allri eiginlegri starfsemi Varnarliðsins lokið á Íslandi, enda búið að loka nánast allri starfsemi þess á varnarsvæðinu.
Þyrlusveitin er þar með öll farin til Englands. Segja má að saga sveitarinnar hér á landi endi líkt og hún byrjaði en upphaflega kom hún frá Englandi árið 1971 sem útibú frá móðursveit.

Frá Keflavíkurflugvelli í morgun. VF-myndir: Ellert Grétarsson





Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024