Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

SFR og FFR semja við Isavia ohf
Fimmtudagur 30. júní 2011 kl. 12:55

SFR og FFR semja við Isavia ohf

Samninganefndir SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu og Félag flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) skrifuðu undir nýjan kjarasamning við Isavia ohf um miðnættið í gær. Samningurinn er á svipuðum nótum varðandi innihald og áherslur og þeir samningar sem SFR hefur verið að gera undanfarið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Prósentur og krónur

Kjarasamningur SFR framlengist til 30. apríl 2014. Launahækkanir verða krónutöluhækkun eða prósentuhækkun eftir því hvor leiðin skilar félagsmönnum hagstæðari niðurstöðu. Þannig er félagsmönnum tryggðar 12.000 kr. eða að lágmarki 4,25% hækkun þann 1. júní 2011, 11.000 kr. eða að lágmarki 3,50% hækkun þann 1. febrúar 2012 og 11.000 kr. eða að lágmarki 3,25% þann 1. febrúar 2013.

Samningurinn gerir einnig ráð fyrir 50.000.- eingreiðslu ef hann verður samþykktur, sem og sérstakum álagsgreiðslum á árinu. Þar er um að ræða hækkanir á orlofs- og desemberuppbót þannig að 10.000.- bætast við orlofsuppbótina nú í ár og 15.000.- á desemberuppbótina.


Frí í skiptum fyrir yfirvinnu og fleiri atriði

Nýlunda er núna að starfsmenn geta safnað frídögum vegna yfirvinnu án takmarkana, ef starfsmaður og vinnuveitandi koma sér saman um það. Einnig var gengið frá fleiri atriðum er varða starfsumhverfi og aðstæður starfsmanna, eins og akstur, þjálfunar- og námskerfi Isavia og fleira.


67 ára regla Isavia

Isavia hefur sett sér þá reglu að starfsmenn skuli hætta störfum þegar þeir hafa náð 67 ára aldri. Þessari reglu hafa félögin harðlega mótmælt og krafist þess að starfsmenn geti starfað fram að 70 ára aldri eins og gerist hjá ríkinu. Isavia hefur ekki ljáð máls á að draga þessa starfsreglu sína til baka. SFR og FFR líta á þessa ákvörðun sem stjórnvaldsákvörðun sem brjóti í bága við jafnræðisreglu stjórnsýsluákvarðana. Félögin munu því beina kröfu sinni að ráðherrum fjármála og innanríkismála af fullum þunga á næstunni til að fá þessari ósvinnu hnekkt.


Kynning og atkvæðagreiðsla

Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á næstunni og atkvæðagreiðslu um hann verður að vera í síðasta lagi lokið fyrir 20. júlí næstkomandi. Kynningarfundir á kjarasamningnum verða haldnir á næstunni og atkvæðagreiðsla mun fara fram í kjölfarið.