Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sex Suðurnesjamenn upplifðu skotárás í stórverslun í Boston
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. janúar 2022 kl. 07:44

Sex Suðurnesjamenn upplifðu skotárás í stórverslun í Boston

„Mjög óhugnalegt – eins og í amerískri bíómynd“

„Þetta var mjög óhugnalegt og í raun eins og í bíómynd,“ segir Ágústa Guðný Árnadóttir en hún og fimm aðrir Suðurnesjamenn sem voru í fríi í Boston lentu í óskemmtilegri lífsreynslu þegar þau upplifðu skotárás í stórri verslunarmiðstöð á sunnudagskvöld.

„Eftir því sem við lifum lengur bætist í reynslubankann. Rétt í þessu var skotárás í mollinu sem við vorum í í Braintree í Boston. Ekkert okkar sex sem erum saman hér úti urðum vör við skotárásina en það sem fylgdi á eftir erum við að upplifa í beinni. Guðný og Brynja læstar inni í einni búð og Ægir, Ágústa og Ágúst inni í annari. Hjörvar sem var í þriðju búðinni var rekinn út og er á leið uppá hótel. Hér eru lögreglur út um allt og verða líklega þangað til búið er að tryggja svæðið. Þar sem fréttir eru fljótar að berast þá vildum við láta ykkur vita en um leið segja ykkur að það er ástæðulaust að hafa áhyggjur af okkur,“ sagði hópurinn í færslu á samfélagsmiðlum fljótlega eftir atburðinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við vorum bara að labba inn ganginn þegar lögreglumenn koma hlaupandi með byssur. Við vissum þá að þetta var ekki eðlilegt og fórum inn í næstu verslun. Mínútu síðar var henni lokað og okkur sagt að fara baka til í henni og síðan lengra inn á lager þegar ljóst hvað var í gangi. Honum var síðan lokað af svo við værum örugg. Við fengum svo upplýsingar um deilur tveggja manna, annar 26 ára maður sem átti í deilum við annan. Hann var svo skotin fyrir utan og færður á sjúkrahús, í lífshættu. Byssumaðurinn náði að hlaupa í burtu og hafði ekki náðst þegar við fórum. Eftir um fjörutíu mínútur var öllum hleypt út en þá var allt morandi í lögreglu- og sérsveitarmönnum. Þetta var vægast sagt mjög óhugnalegt. Maður hefur sem betur fer aldrei upplifað svona áður en hvað gerist ekki í Bandaríkjunum. Þetta var eins og í alvöru bíómynd,“ sagði Ágústa við Víkurfréttir en hópurinn gisti á hóteli rétt hjá stórversluninni. Hópurinn er kominn til Íslands.