Miðvikudagur 5. júlí 2006 kl. 09:20
Sex ökumenn á hraðferð
Sex ökumenn fengu tiltal hjá lögreglunni í Keflavík síðasta sólarhringinn vegna hraðaksturs á Reykjanesbraut, þar af fimm á síðustu næturvakt. Annars hefur verið nokkuð rólegt að gera hjá lögreglunni og lítið borið til tíðinda.