Sex óku of hratt og þrír beltislausir
Sex ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 123 kílómetra hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar á klukkustund. Þá reyndust þrír ökumenn án öryggisbeltis við aksturinn, sem er dýrt spaug því sektin við slíku broti er fimmtán þúsund krónur.