Sex milljónir til verkefna á Suðurnesjum
Styrkir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða voru veittir í gær og er þetta fyrsta úthlutunin af þremur á þessu ári. Alls fengu 44 verkefni styrk að þessu sinni og nam heildarstyrkupphæðin rúmlega 150 milljónum króna. Af þessum 150 milljónum króna komu sex til Suðurnesja.
Á næstu þremur árum mun sjóðurinn stóreflast en hann mun fá árlega 500 milljónir aukalega í tengslum við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. til að standa fyrir löngu tímabæru viðhaldi, gróðurvernd og uppbyggingu við ferðamannastaði.
Á næstu dögum verður auglýst eftir styrkumsóknum fyrir næstu úthlutun úr sjóðnum og er gert ráð fyrir að úthlutun fari fram í apríl n.k. Eins og fram hefur komið tilkynntu stjórnvöld í haust um 500 milljóna króna árlegt framlag til sjóðsins næstu þrjú árin í tengslum við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar. Með þessu aukna framlagi er hægt að fara með mun markvissari hætti en áður í uppbyggingu áfangastaða ferðamanna vítt og breitt um landið, bæta ásýnd og yfirbragð staða og svæða, draga úr álagi og skemmdum af völdum vaxandi fjölda ferðamanna, bæta öryggismál, innviði og þjónustu við ferðamenn og þar með upplifun þeirra og ánægju af dvölinni.
Verkefnin sem voru studd á Suðurnesjum eru:
Sandgerðisbær
Gönguleiðir kringum Sandgerðistjörn
2.000.000
Ferðamálasamtök Suðurnesja
Þjónustuhús við Valahnúk Reykjanesi
kr. 1.500.000
Grindavíkurbær
Húshólmi í Ögmundarhrauni - Bætt aðgengi að minjum
kr. 1.500.000
Sandgerðisbær
Aðgengi að Stafnesvita
kr. 1.000.000