Sex milljarða kr. þota lent í Keflavík
Ný Boeing 757-300 þota sem Boeing-fyrirtækið færði Flugleiðum í morgun hefur hlotið nafnið Snorri Þorfinnsson. Vélin kom í beinu flugi frá Seattle undir stjórn Hilmars Baldurssonar flugstjóra og ber íslensku skrásetninguna TF-FIX. Vélin er um 55 metra löng og kostar litla 6 milljarða króna.Það var Guðríður Jónsdóttir sem gaf vélinni nafn en nafngjöfin fór fram í Keflavík kl. 10 í morgun.
Vélin er tíunda farþegaþotan í flota Flugleiða og var öllum tíu ára börnum á Suðurnesjum boðið að vera viðstödd móttökuathöfn.
Vísir.is:
Fyrsta Boeing 757-300 vélin til Flugleiða
Í dag taka Flugleiðir á móti nýrri Boeing 757-300 þotu frá Boeing verksmiðjunum í Seattle. Koma vélarinnar markar þau tímamót að nú verða allar 10 farþegavélar Flugleiða af gerðinni Boeing 757.
Að því hefur verið stefnt í hagræðingar- og sparnaðarskyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Flugleiðum. "Flugleiðir starfrækja í sumar níu Boeing 757-200 farþegavélar auk nýju vélarinnar, en Boeing 737 vélum hefur verið skilað á undanförnum árum, þeirri síðustu nú í vor.
Nýja flugvélin kom hingað í beinu flugi frá Seattle undir stjórn Hilmars Baldurssonar flugstjóra og ber íslensku skrásetninguna TF-FIX. Við komuna til Keflavíkur gaf Guðríður Jónsdóttir vélinni nafnið Snorri Þorfinnsson. Nýjar vélar Flugleiða hljóta nú nöfn íslenskra landnámsmanna og landkönnuða. Nafn Snorra er vel við hæfi en hann var víðförull maður og fyrsti Evrópumaðurinn sem fæddist í Vesturheimi, sonur Þorfinns Karslefnis og Guðríðar Þorbjarnardóttur.
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, Borge Boeskov, einn forstjóra Boeing, sem er af íslenskum ættum, og Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða fluttu ávörp við móttökuathöfn. Sérstakir gestir við komu vélarinnar voru um 300 tíu ára börn úr grunnskólum á Suðurnesjum.
Nýja vélin er mjög áþekk öðrum vélum Flugleiða, en er sú stærsta í flotanum, 54,5 metrar að lengd, um 7 metrum lengri en Boeing 757-200 vélarnar sem landsmenn þekkja. Þessi gerð getur tekið um 280 farþega, en er innréttuð fyrir Flugleiðir til að taka 228 farþega. Vélin er tæknilega fullkomin, hún er sparneytin, lágvær og umhverfisvæn og farþegarýmið er rúmgott og þægilegt. Ný vél af þessari tegund kostar um 6 milljarða króna.
Mikil hagræðing er í því að hafa aðeins eina tegund flugvéla í resktri samtímis, einkum hvað varðar þjálfun og varahluti. Betri nýting áhafna næst og mikill þjálfunarkostnaður sparast þar sem flugfólk er þjálfað fyrir eina gerð flugvéla. Einnig sparast kostnaður vegna handbóka og ýmiss konar námskeiða fyrir áhafnir, tæknilið, flugumsjónarmenn, og yfirmenn flug- og tæknideilda. Þá verður umtalsverður sparnaður við varahlutalager, þar á meðal vegna varahreyfla. Mörg smærri flugfélög aðhyllast þessa stefnu og þó einkum hin svokölluðu lággjaldaflugfélög, sem öll nýta sér kosti þess að reka aðeins eina tegund flugvéla.
Þessi glæsilegi farkostur er staðfesting á þeirri stefnu Flugleiða að bjóða landsmönnum óviðjafnanlegar flugsamgöngur við útlönd og auka enn ferðamannastraum hingað með því að bjóða reglulegar Íslandsferðir frá fjölmörgum löndum."