Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sex milljarða framkvæmdir við Bláa Lónið. Lúxushótel opnar 2017
Starfsmenn verkfræðistofa, verktaka og Bláa Lónsins skoðuðu aðstæður á vettvangi. Umhverfið er ægifagurt. VF-myndir/pket.
Föstudagur 10. apríl 2015 kl. 14:00

Sex milljarða framkvæmdir við Bláa Lónið. Lúxushótel opnar 2017

- Mannvirki Bláa Lónsins munu tvöfaldast að stærð. 150 starfsmenn vinna við hótelbygginguna og 100 ný störf verða til eftir opnun.

Bláa Lónið og Jáverk hafa undirritað verksamning vegna stækkunar upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og byggingar lúxus hótels. Samningurinn hljóðar upp á 3,4 milljarða króna en samtals er heildarkostnaðurinn vegna framkvæmdanna um 6 milljarðar. Mannvirki Bláa Lónsins munu tvöfaldast að stærð. Hundrað ný störf verða til og verða því um 400 eftir opnunina sem gert er ráð fyrir í upphafi árs 2017. Á framkvæmdatíma, sem áætlað er að verði tvö ár, munu 150 starfsmenn starfa við verkefnið.

Endurhönnun og stækkun núverandi lónssvæðis er mikilvægur hluti verkefnisins. Þá verður  nýtt spa upplifunarsvæði byggt inn í hraunið vestur af núverandi lóni og mun það tengja núverandi lón og nýtt lúxushótel . Með tilkomu hótelsins verður fyrsta flokks gisting hluti af  upplifun Bláa Lónsins.  Í hótelinu er gert ráð fyrir 60 herbergjum, fundarsal og veitingastað. Stækkun og endurhönnun núverandi upplifunarsvæðis er mikilvægur þáttur uppbyggingarinnar, en lónið sjálft verður stækkað um helming.  Ný og glæsileg aðstaða fyrir spa meðferðir sem boðið er upp á ofaní lóninu er hluti stækkunarinnar.  Verkefnið er í takt við þróun Bláa Lónsins undanfarin ár þar sem jafnt og þétt hefur verið unnið að því að auka úrval og gæði þjónustu.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri ánægjulegt að ganga til samninga við Jáverk. „Fyrirtækið er þekkt fyrir vönduð og góð vinnubrögð. Við hlökkum  til samstarfs við Jáverk við það metnaðarfulla uppbyggingarverkefni sem við höfum nú  hafið.“
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverk, sagði við undirritunina að mannvirki og hönnun Bláa Lónsins væri þekkt fyrir samspil hins manngerða og náttúrulega umhverfis. „Hinar nýju byggingar verða engin undantekning.  Verkefnið er því í senn spennandi og mikil áskorun.“

Eitt hundrað ný störf í ferðaþjónustu

Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum í tengslum við stækkun upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og mun hluti starfsfólks hefja störf á framkvæmdatíma. Störfin verða fjölbreytt, en eins og önnur störf hjá fyrirtækinu munu þau miða að því að veita gestum Bláa Lónsins góða og fágaða þjónustu. Hluti starfanna sem verða til við stækkunina munu kalla á háskólamenntað fólk og starfsmenn með   sérþekkingu á sviði heilsu og vellíðunar.  Hjá Bláa Lóninu starfa um 300 starfsmenn á ársgrunni. Að framkvæmdum loknum er gert ráð fyrir því að heildarstarfsmannafjöldi verði 400.

Páll Ketilsson ræddi við Grím og Gylfa eftir undirritun samningsins í Grindavík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þriggja milljarða samningur handsalaður hjá Grími og Gylfa.

Það er ekki einfalt að byggja hótel inni í hrauni. Hótelgestir munu upplifa veruna á einstakan hátt.

Það er ekki smámál að koma stórum vinnuvélum að, hvað þá frá verkstað.

Hér má sjá teikningu af svæðinu eins og það mun líta út eftir stækkun. Stækkunin er til vesturs.