Sex kærðir fyrir of hraðan akstur
Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 136 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þá voru höfð afskipti af fáeinum vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum vímuefna.
Bílvelta var í grennd við Helguvík í vikunni, tveir voru í bílnum og sluppu þeir án alvarlegra meiðsla.