Fréttir

Sex kærðir fyrir hraðakstur
Föstudagur 12. apríl 2013 kl. 15:09

Sex kærðir fyrir hraðakstur

Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tveir sem hraðast óku mældust á 127 kílómetra hraða, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Þá ók einn ökumaður án bílbeltis og reyndist hann einnig vera sviptur ökuréttindum þegar að var gáð. Þrír voru með filmur í fremri hliðarrúðum bifreiða sinna, tveir virtu ekki biðskyldu og aðrir tveir höfðu lagt upp á gangstétt. Loks var einn ökumaður stöðvaður, grunaður um ölvun við akstur. Hann var færður á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024