Sex í áframhaldandi gæsluvarðhaldi
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að dómurinn úrskurðaði 6 karlmenn til að sæta áframhaldandi gæsluvarðahaldi allt til miðvikudagsins 4. nóvember n.k. kl. 16:00. Mennirnir, 5 Litháar og 1 Íslendingur, hafa setið í gæsluvarðhaldi að undanförnu vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi.
Dómari féllst á kröfu lögreglustjóra og úrskurðaði alla mennina í áframhaldandi gæsluvarðhald.
Ekki var gerð krafa um framlengingu gæsluvarðhalds yfir sjöunda manninum sem einnig hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna lögreglurannsóknarinnar og hefur hann verið látinn laus.
Lögregla vill á þessari stundu ekki veita frekari upplýsingar um gang rannsóknarinnar en telur að henni miði vel.