Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sex bónorð á dag í Bláa Lóninu - Huffington Post í heimsókn á Reykjanesi
Mánudagur 19. nóvember 2018 kl. 09:10

Sex bónorð á dag í Bláa Lóninu - Huffington Post í heimsókn á Reykjanesi

Reykjanesið er sérstaklega tekið fyrir í nýrri grein sem birtist á vef fjölmiðlarisans Huffington Post. Í greininni, sem Markaðsstofa Reykjaness vekur athygli á, er spjallað við Suðurnesjamanninn Atla Sigurð Kristjánsson markaðsstjóra Bláa Lónsins auk þess sem forsetafrúin Eliza Reid ræðir um sundlaugarmenningu Íslendinga. Að sögn Atla má gera ráð fyrir um sex bónorðum á dag í Bláa Lóninu, en þessi perla Reykjaness er fyrir löngu orðin heimsfrægur áningarstaður.
 
„Ef þig langar að fá kraft náttúrunnar beint í æð, þá er tilvalið að fara í útsýnisferð um Reykjanesið, sem er í bakgarði Keflavíkurflugvallar,“ segir í grein Huffington post.
 
Þar segir einnig að svæðið sé UNESCO Geopark og því suðupottur jarðhita og jarðfræði, auk þess sem finna má þar svartar strendur og frekari fegurð.
 
Hvatt er til þess að heimsækja Brúna milli heimsálfa þar sem hægt er standa milli Evrópu- og Ameríkuflekanna. Greinarhöfundur heimsótti einnig Gunnuhver og Reykjanesvita. Steinsnar frá er svo veitingastaðurinn Hjá Höllu í Grindavík, sem höfundur gefur góð meðmæli.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024