Sex ára drengs leitað
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir nú eftir Jónatani, sex ára gömul dreng sem fór frá heimili sínu í Keflavík um kl. 8 í morgun.
Jónatan er ljóshærður og stór miðað við aldur, en ekki er vitað hvernig hann er klæddur.
Fjórir bílar frá lögreglunni á Suðurnesjum leita hans nú.
Hann fór á hvítu og bláu Trek reiðhjóli og er hann ekki með hjálm.
Þeir sem vita hvar Jónatan er eða geta gefið upplýsingar vinsamlegast hafið samband við lögreglu í síma 420 1800.