Sex á sjúkrahús eftir árekstur
Sex manns voru fluttir á sjúkrahús eftir mjög harðan árekstur við Vogaafleggjara um klukkan hálf sjö í morgun. Engin mun þó hafa slasast alvarlega. Beita þurfti klippum til að ná öðrum ökumanninum úr bílflakinu. Ekki er vitað um tildrög slyssins en bílarnir komu úr gagnstæðum áttum. Fljúgandi hálka var á Reykjnesbrautinni í morgun. Miklar umferðartafir urðu á brautinni vegna slyssins.