Bygg
Bygg

Fréttir

Sérútbúin jeppabifreið lögreglu: Enginn vígbúnaður
Föstudagur 7. nóvember 2008 kl. 12:07

Sérútbúin jeppabifreið lögreglu: Enginn vígbúnaður


Dagblaðið DV fjallaði í gær um sérútbúna bíla lögreglunnar og fullyrti að lögreglan í landinu væri að „vígbúast gegn fólki“. Meðal annars var vísað til mynda sem birtust hér á vef Víkurfrétta á dögunum af sérsveitarmönnum við æfingar á Keflavíkurflugvelli, þar sem meðal annars var notast við sérútbúna jeppabifreið.

Ríkislögreglustjóri hefur sent út tilkynningu til fjölmiðla þar sem sagt er að það sér uppspuni að lögreglan sé að vígbúast gegn fólkinu í landinu og að ekki sé verið að útbúa nýja óeirðabíla fyrir lögreglu né að breyta strætisvagni í fjarskiptamiðstöð, eins og DV fullyrðir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Meðfylgjandi eru myndir af sérútbúinni jeppabifreið sem sérsveitarmenn notuðust við á Keflavíkurflugvelli á dögunum og ljósmyndari Víkurfrétta tók myndir af. Þessi bifreið er því ekki hluti af vígbúnaði lögreglu.