HSS
HSS

Fréttir

Sérsveitarmenn tóku fullt af dópi
Laugardagur 20. september 2008 kl. 10:47

Sérsveitarmenn tóku fullt af dópi



Sérsveitarmenn lögreglu, staðsettir á Suðurnesjum, höfðu síðdegis í gær afskipti af ökumanni í Reykjanesbæ. Í viðræðum við ökumann vaknaði grunur um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn viðurkenndi fíkniefnaneyslu og framvísaði 3 grömmum af marijuana.

Grunur vaknaði um að ökumaður væri sölumaður fíkniefna og var farið á dvalarstað ökumanns þar sem ríflega 100 neysluskammtar af fíkniefnum í sölupakkningum fundust.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Stuttu er síðan sérsveitarmenn á Suðurnesjum höfðu afskipti af ungu pari með tæplega 200 gr af hassi.

Mynd: Sérsveitarmenn gráir fyrir járnum. Myndin tengist ekki fréttinni beint. Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson