Sérstakar húsaleigubætur í boði
Þeir Grindvíkingar sem búa í almennu leiguhúsnæði geta nú sótt um sérstakar húsaleigubætur hjá Grindavíkurbæ, en þetta var samþykkt í Bæjarráði Grindavíkur í vikunni og er viðbótarþjónusta hjá bænum.
Í reglugerð um sérstakar húsaleigubætur í Grindavík kemur fram að þær eru ætlaðar þeim fjölskyldum og einstaklingum sem eiga í erfiðleikum með að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra erfiðleika. Eignir og tekjur umsækjenda miðast við ákveðnar hámarksupphæðir og umsækjandi þarf að hafa átt lögheimili í Grindavík samfellt síðastliðna 18 mánuði þegar sótt er um.
Almennar húsaleigubætur og hinar sértæku geta orðið að hámarki 60.000 kr. samtals og geta aldrei farið yfir 75% af leigufjárhæð. Umsóknir skulu berast félagsþjónustu á þar til gerðum eyðublöðum. Endurnýja skal umsókn um sérstakar húsaleigubætur á sex mánaða fresti og um leið og endurnýjun almennra húsaleigubóta á sér stað, segir á vef Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is