Sérhannað reykköfunarhús tekið í notkun
Brunavarnir Suðurnesja taka í dag í notkun sérhannað hús til reykköfunar. Húsið er sett saman úr gámaeiningum og var smíðað af Freymóði Jenssyni, þúsundþjalasmið, sem rekur smiðju sína í Garðinum. Húsið var flutt úr Garðinum og að gömlu sorpeyðinarstöðinni við Hafnaveg um síðustu helgi og þurfti þá að loka nokkrum vegum.
Þegar æfingahúsið verður formlega tekið í notkun í dag verður einnig tekin í notkun ný hitamyndavél sem er bylting í starfi reykkafara. Vélin er fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Slökkvilið BS hefur undanfarið ár verið að kynna sér hitamyndavélar til að nota við erfiðar aðstæður t.d. í reykköfun. Slíkur myndbúnaður byggir á næmni á útfjólubláum geislum þ.e. að skynja misjafnt hitastig í efnum. Þessi tækni getur verið gagnleg reykköfurum við að finna fórnarlömb við erfiðar aðstæður sem og hvar eldur er í byggingunni t.d. í lokuðu rými s.s. inn í vegg á milli þilja. Menn eru sammála um ágæti og mikið notagildi myndvélarinnar. Myndavélin mun sannarlega auka lífsmöguleika fórnarlamba og slökkviliðsmanna við erfiðar aðstæður og auka öryggi í leit.
VF-myndir/Hilmar Bragi