Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sérfræðingur í öldrunarlækningum ráðinn til Hrafnistu
Miðvikudagur 30. ágúst 2023 kl. 15:29

Sérfræðingur í öldrunarlækningum ráðinn til Hrafnistu

Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum, hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Hrafnistu frá og með 1. nóvember. Steinunn hefur undanfarin fimm ár gegnt stöðu yfirlæknis heilabilunareiningar Landspítala ásamt því að vera formaður Læknafélags Íslands undanfarin ár en því starfi mun hún sinna áfram samhliða starfi á Hrafnistu.

Steinunn er jafnframt, svo vitað sé, fyrsti öldrunarlæknirinn með sérþekkingu á heilabilunarsjúkdómum sem ráðinn hefur verið til starfa á hjúkrunarheimili á Íslandi. Ljóst er að hún mun koma með dýrmæta viðbótarþekkingu til Hrafnistu og mun koma að því að efla enn frekar þá þjónustu sem veitt er íbúum og öðrum þjónustuþegum. Hrafnista hefur átt í mjög góðu samstarfi við Heilsuvernd sem þjónustar heimilin með læknisþjónustu og mun það samstarf halda áfram í óbreyttu formi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Framkvæmdastjóri lækninga mun verða hluti að framkvæmdaráði Hrafnistu og verður góð viðbót við þann sterka hóp í stefnumótun og framtíðarsýn á þjónustu við eldra fólk og aðra sem þiggja eða munu þurfa á þjónustu að halda framtíðinni. Við erum sannfærð um að þessi spennandi nýjung í stjórnendahópi Hrafnistu muni efla enn frekar þá faglegu og öflugu þjónustu sem Hrafnistuheimilin veita nú þegar og gera þeim enn betur kleift að viðhalda því markmiði að vera ávallt leiðandi í þjónustu við aldraða hér á landi,“ segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu.