Bygg
Bygg

Fréttir

Sendiherra Bandaríkjanna kynnir sér atvinnulíf á Suðurnesjum
Föstudagur 27. maí 2005 kl. 10:32

Sendiherra Bandaríkjanna kynnir sér atvinnulíf á Suðurnesjum

James Irvin Gadsden sendiherra Bandaríkjanna heimsækir Suðurnes í dag og kynnir sér atvinnulíf svæðisins. Hann hóf daginn með því að skoða iðnaðarsvæðið í Helguvík ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Pétri  Jóhannssyni hafnarstjóra Reykjaneshafnar.
Sendiherrann mun einnig kynna sér starfsemi í Kaffitári, á flugvallarsvæðinu og hjá Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi. Þar mun hann m.a. skoða jarðfræði svæðisins. Einnig verður farið í Bláa lónið þar sem sendiherrann ræðir við fulltrúa úr sveitarstjórnum svæðisins.

Myndin: Sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og bæjarstjórinn í Reykjanesbæ ásamt viðskiptafulltrúa í Helguvík í morgun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn