Bygg
Bygg

Fréttir

Semja verklagsreglur um Reykjanesbæ á samfélagsmiðlum
Það er ekki hluti af starfsskyldu starfsmanna Reykjanesbæjar almennt að svara á samfélagsmiðlum.
Föstudagur 10. febrúar 2017 kl. 10:35

Semja verklagsreglur um Reykjanesbæ á samfélagsmiðlum

- Svör starfsmanna nú þeirra eigin en ekki bæjarfélagsins

Hjá Reykjanesbæ er nú hafin vinna við mótun stefnu og gerð verklagsreglna um það hvernig og hverju er svarað á samfélagsmiðlum fyrir bæjarfélagið. Þá munu reglurnar einnig ná utan um það hver svarar fyrirspurnum. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, greinir frá þessu á Facebook-síðunni Reykjanesbær - gerum góðan bæ betri. Þar segir bæjarstjórinn frá því að á meðan sú vinna sé í gangi beri að líta á svör og viðbrögð starfsmanna bæjarfélagsins sem þeirra eigin en ekki bæjarfélagsins. „Það er ekki hluti af vinnuskyldu starfsmanna almennt að svara á samfélagsmiðlum en líklegt að einhverjir tilteknir fái það verkefni þegar stefnan og vinnureglurnar liggja fyrir, eftir vonandi ekki alltof langan tíma,“ segir í tilkynningu Kjartans Más.

Um nokkurt skeið hefur tíðkast að íbúar merki embættismenn Reykjanesbæjar inn á færslur sínar um málefni tengd bæjarfélaginu, til dæmis á síðunni Reykjanesbær - gerum góðan bæ betri sem þó er ekki á vegum bæjarins. Í sumum tilvikum hafa embættismennirir svarað fyrirspurnunum á Facebook. Góðlátlegt grín var gert að þessu fyrirkomulagi í annál á þorrablóti Keflavíkur á dögunum þar sem sviðsstjóri Umhverfissviðs, Guðlaugur H. Sigurjónsson, var merktur inn á færslur íbúa af ýmsu tagi. Annálinn má sjá hér.

Bílakjarninn
Bílakjarninn