Seley tók niðri við Grindavík
Skipið Seley tók niðri við innsiglinguna í Grindavík rétt fyrir klukkan sjö á mánudagsmorgun og skemmdist töluvert. Botnstykkið skipsins skemmdist og slingubrettið stjórnborðsmegin rifnaði af að hluta. Skipið var að koma heim með fullfermi af loðnu en mikið brim var við innsiglinguna þegar óhappið átti sér stað.