Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Sektarboð hafði góð áhrif og börnin spennt
Ljósmynd: Lögreglan á Suðurnesjum
Föstudagur 18. janúar 2019 kl. 09:59

Sektarboð hafði góð áhrif og börnin spennt

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðið að sekta ökumenn bifreiða sem ekki setja börn í löglegan öryggisbúnað. Lögreglan hefur verið með eftirlit við leikskóla í Reykjanesbæ og því miður eru foreldrar ekki að standa sig vel þegar kemur að öryggisbúnaði barna.
 
Lögreglan lýsti ástandinu þar sem mál voru í miklum ólestri hjá foreldrum. Í einu tilviki var barn laust og liggjandi í aftursæti bílsins þegar komið var á leikskólann.
 
„Það að setja börnin ekki í löglegan öryggisbúnað er ekki í lagi og eftir að hafa skoðað þessi mál og séð ástandið síðustu daga þá verðum við að stíga niður fæti og beita viðurlögum. Sektin við því að setja barn ekki í viðurkenndan öryggisbúnað er 30.000 krónur,“ segir lögreglan í tilkynningu.
 
Ökumenn verða ekki bara sektaðir því málinu verður einnig sjálfkrafa vísað til barnaverndaryfirvalda, enda er það vanræksla við barnið að setja það ekki í löglegan öryggisbúnað og það er á ábyrgð ökumanns hverju sinni að börn að 15 ára aldri spenni öryggisbelti og/eða noti annan viðurkenndan búnað eins og bílstóla og sætispúða.
 
Það virðist hafa haft áhrif á ökumenn að tilkynna um hertar aðgerðir gegn þessum alvarlegu brotum að hafa ekki börnin í viðurkenndum öryggisbúnaði því strax daginn eftir voru allir ökumenn með allt á hreinu og í samtali við Víkurfréttir í vikunni sagði Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, að honum væri ekki kunnugt um að nokkur hafi verið sektaður en sektum verði beitt verði ökumenn uppvísir að broti.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024