HS Veitur
HS Veitur

Fréttir

Seinkun á að hægt verði að hleypa á heitu vatni
Föstudagur 9. febrúar 2024 kl. 13:17

Seinkun á að hægt verði að hleypa á heitu vatni

Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá HS Orku verður seinkun á því að hægt verði að hleypa heitu vatni á nýju hjáveitulögnina við Njarðvíkurlögnina sem hraun flæddi yfir í gær. Vinnan við nýju lögnina hefur gengið vel en tafist örlítið sem veldur seinkuninni. Nú er stefnt að því að hægt verði að hleypa heitu vatni á lögnina á miðnætti í kvöld.

Til upplýsinga getur tekið allt að tvo sólarhringa til að ná fullum þrýstingi á lögnina og því þarf fólk að fara sparlega með vatnið áfram eftir að búið er að hleypa heitu vatni aftur á í kvöld.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Almannavarnir hvetja íbúa Suðurnesja að fylgjast vel með fréttum og leiðbeiningum vegna heitavatnsleysis sem má finna hér að neðan.
Spurt og svarað vegna heitavatnsleysis á Suðurnesjum | Almannavarnir

Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025