Segja heiðurmannasamkomulag ekki virt
Minnihlutinn í bæjarstjórn sveitarfélagsins Voga sakar meirihlutann um að ganga gegn heiðursmannasamkomulagi listanna tveggja varðandi meðferð þess fjár sem fékkst við sölu á hlut sveitarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja. Lögfræðiálit mun hins vegar hafa kveðið á um að samkomulagið gæti stangast á við ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Málið var til umfjöllunar á síðasta bæjarstjórnarfundi í Vogum og lagði Inga Sigrún Atladóttir fram svohljóðandi bókun fyrir hönd minnihlutans.
„Þegar þeir flokkar sem skipa bæjarstjórn Sveitarfélasins Voga ákváðu í sameiningu að selja hluta Bæjarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja var rætt um að sá sjóður, sem andvirði sölunnar myndaði, yrði til framtíðar varasjóður Sveitafélagsins líkt og bréfin í Hitaveitunni voru áður. Þegar þessi ákvörðunin var tekin var rætt um tryggja að höfuðstóll sjóðsins yrði ekki skertur nema þrír fjórðu hlutar bæjarstjórnar gæfu samþykki sitt, auk þess var rætt um að slíkt þyrfti tvær umræður í bæjarstjórn, fyrir og eftir kosningar þannig að ráðstöfun fjársins yrði hluti af kosningaumræðu þeirra flokka sem með þessa fjármuni færu.
Með þeirri samþykkt sem nú liggur fyrir gengur meirihlutinn gegn því sem rætt var um í aðdraganda sölunnar, þannig teljum við að gengið sé gegn því sem við töldum vera heiðursmannasamkomulag milli listanna tveggja og lítum við slíkt alvarlegum augum. Þessar athugasemdir hafa áður verið bornar undir meirihlutann án þess að tekið væri tillit til þeirra og því viljum við bóka þessa afstöðu okkar við þetta tilefni.“
Róbert Ragnarsonn, bæjarstjóri, svaraði því til að við vinnslu reglna um Framfarasjóðinn hefði verið leitað til sérfræðinga KPMG ráðgjafar, þar á meðal lögfræðings sem hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum. Samkvæmt hans áliti getur samþykktin stangast
á við ákvæði sveitarstjórnarlaga um sjálfsforræði sveitarstjórnar ef ákvörðun um ráðstöfun fjármuna af höfuðstól sjóðsins krefst aukins meirihluta og að kosningar þurfi á milli umræðna.
Róbert benti á að ákvörðun um að ganga á höfuðstól sjóðsins krefðist tveggja umræðna í bæjarstjórn í tengslum við fjárhagsáætlanagerð. Afla skyldi álits óháðra sérfræðinga á nauðsyn ráðstöfunarinnar til hagsbóta fyrir íbúa sveitarfélagsins og skyldi það álit kynnt bæjarfulltrúum áður en síðari umræða um tillöguna færi fram. Ferlið væri því mjög gagnsætt og lýðræðislegt.