Segir tilboðum keppinauta hafa verið lekið til Magma
Tilboðum keppinauta Magma um kaupin á hlut Geysis Green Energy í HS Orku var lekið til Magma. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greinir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildamönnum.
„Á seinni hluta síðasta árs hófust þreifingar um sölu á helmingshlut Geysis Green Energy í HS Orku. Þá sýndu nokkrir aðilar áhuga á að kaupa hlutinn en Íslandsbanki hafði umsjón með sölunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu lýsti bankinn því yfir við áhugasama kaupendur að söluferlið yrði opið. Það kom því flatt upp á þá að frétta það nú undir vor að kaupin væru nánast frágengin. Bankinn leyfði þremur aðilum að taka þátt í lokuðu söluferli,“ segir orðrétt í frétt RÚV.
Í fréttinni er vitnað til þess að Viðskiptablaðið hafi greint frá því að Norðurál var einn þeirra og samkvæmt heimildum fréttastofu gerði Framtakssjóður lífeyrissjóðanna óformlegt tilboð. Hæsta tilboðið mun ekki hafa komið frá Magma. „Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvers vegna hæsta tilboði var ekki tekið. Þá hefur fréttastofa heimildir fyrir því að Magma hafi ávallt fengið að vita hvað keppinautarnir buðu í HS Orku hlutinn,“ segir í frétt RÚV.