Bygg
Bygg

Fréttir

Segir enga útrásarvíkinga tengjast viðskiptunum
Þriðjudagur 14. júlí 2009 kl. 09:20

Segir enga útrásarvíkinga tengjast viðskiptunum


Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy, segir enga svokallaða útrásarvíkinga tengjast þeim viðskiptum sem nú eiga sér stað á mlli GGE og Reykjanesbæjar með aðkomu kanadíska fyrirtækisins Magma Enerrgy.

Ásgeir var innur eftir því á íbúafundinum í Duus-húsum í gærkvöldi hvort það gæti verið að „þeir REI-bræður“,  Jón Ásgeir Jóhannesson, Bjarni Ármannsson, Hannes Smárason eða fyrirtæki tengd þeim ætluðu sér að koma með peninga inn í HS Orku.

Ásgeir sagði forstjóra Magma Energy hafa sérstaklega gott orð á sér og ferill hans væri glæsilegur. „Magma er félag sem nýlega var skráð á hlutabréfamarkað í Toronto í Kanada. Magma er því ekki einshvers konar aflandseyja – skúffufélag,“ sagði Ásgeir.
„Samkvæmt upplýsingum okkar úr hluthafaskrá félagsins, er engin Íslendingur á meðal hluthafa Magma. Og það er engin feluleikur Íslendinga á bak við Magma. Þetta er ekki skúffufélag í Karabíahafinu, þetta er félag sem er starfandi á markaði í Toronto. Félag af svipuðum toga og Geysir og hefur áhuga á að tengjast okkar þekkingu til sinna starfa og í því felast gríðarleg tækifæri fyrir okkur,“ sagði Ásgeir og ítrekaði að engir „REI-menn“ eða útrásarvíkingar tengdust málinu.

Þessum viðskiptum Reykjanesbæjar hefur verið líkt við hið svokallaða REI-mál sem varð þáverandi borgarstjórn í Reykjavík að falli á sínum tíma.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, sagði þetta rangt í framsöguræðu sem hann flutti á fundinum. Hjá REI hefði átt að nota skattpeninga almennings í útrásarverkefni með eigum OR og steypa saman opinberu fé og einkafé. Hér væri hins vegar verið að skilja að starfsemi einkaaðila frá opinberum aðilum og draga skýrari línur á milli samkeppnisaðila og sérleyfisaðila.

---

Bílakjarninn
Bílakjarninn

VFmynd/elg - Húsfyllir var í Duus-húsum í gær á íbúafundinum.


Tengd frétt:
Húsfyllir á íbúafundi