Segir bæjarfulltrúa taka fram fyrir hendurnar á Skipulags- og bygginganefnd
Ingimundur Þ. Guðnason, bæjarfulltrúi F-lista í Garði segir það vekja furðu þegar fulltrúar N-listans í bæjarráði ákveða að taka fram fyrir hendurnar á Skipulags- og bygginganefnd með því að veita fyrirtæki framkvæmdafrest eftir að nefndin hafði hafnað erindinu. Ingimundur telur þennan gjörning mjög gagnrýniverðan. N-listinn segir skoðanamun innan begga lista hafa verið um málið og því sé það hlutverk bæjarráðs „að taka ákvörðun og skýra línur“.
Forsaga málsins er sú að í vor sendi byggingafulltrúi þeim aðilum bréf sem ekki höfðu byrjað framkvæmdir á áður úthlutuðum lóðum. Með bréfinu var aðilum veittur frestur til að hefja framkvæmdir til 9. júni ella yrði viðkomandi lóðum úthlutað á ný.
Í lok apríl veitti Skipulags- og bygginganend fyrirtækinu Völundarhús ehf frest á framkvæmdum við tvær lóðir við Grímsholt í Garði. Fresturinn var veittur til 1. september. Í lok ágúst sendi fyritækið nefndinni annað erindi um frekari frest en nefndin hafnaði því.
Á fundi bæjarráðs daginn eftir breyttu tveir fulltrúar N-listans þessari ákvörðun Skipulags- og bygginganefndar og veittu fyrirtækinu framkvæmdafrest til áramóta, að því er fram kemur í bókun Ingimundar frá síðasta bæjarstjórarfundi. Fulltrúi F-lista mun hafa setið hjá við atkvæðagreiðsluna.
„Það vekur því undrun þegar fulltrúar N-listans í bæjarráði ákveða að taka fram fyrir hendurnar á Skipulags- og byggingarnefnd og veita frekari frestun um fimm mánuði í viðbót eftir höfnun nefndarinnar á erindi Völundarhúss ehf. .
Hér er meirihlutinn ekki að gæta hagsmuna bæjarins heldur einhverra annarra sem er mjög gagnrýnivert, ekki síst vegna þess hversu fordæmisgefandi slíkt inngrip er,“ segir Ingimundur í bókuninni.
Fulltrúar N-listans segja tillöguna um frestun hafa fallið á jöfnu í Skipulags- og bygginganefnd og auk þess hafi verið skoðanamunur innan beggja lista. Við aðstæður sem þessar sé það hlutverk bæjarráðs að taka ákvörðun og skýra línur. Fresturinn hafi verið veittur vegna ástands sem ríkir í efnaghagsmálum og á fasteignamarkaði. Brugðist hafi verið við á sama hátt í flestum sveitarfélögum landsins, samkvæmt því er fram kemur í bókun N-listans. Þar segir einnig að vegna versnandi efnahagsástands síðustu mánuði þeim lóðarhöfum verið veittum frestur sem um hann hafa beðið í ljósi aðstæðna.