Segir atvinnu- og hafnarráð einblína um of á álversframkvæmdir
Sveindís Valdimarsdóttir, bæjarfulltrúi A-listans í Reykjanesbæjr, gagnrýndi á bæjarstjórnarfundi í gær að í atvinnu- og hafnarráði væri einblínt á álversframkvæmdir í Helguvík í stað þess að horfa einnig til annarra tækifæra. Af þessu spratt mikil umræða á fundinum um atvinnumál.
Sveindís taldi atvinnu- og hafnarráð of upptekið af álveri í Helguvík eins og það væri eina verkefnið sem í gangi væri. „Mér finnst í raun og veru vanta umræðu um atvinnumál í þetta ráð. Ég vona að það séu fleiri atvinnutækifæri á þessu svæði heldur en þetta álver,“ sagði Sveindís meðal annars. Hún taldi vanta meiri og markvissari samvinnu aðila á svæðinu.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, sagði nauðsynlegt að halda fast utan um álversverkefnið. „Við í bæjarstjórn höfum sem betur fer getað staðið saman um þetta verkefni. Ef við hefðum ekki gert það þá væri ekkert að gerast í þessum málum,“ sagði Árni. Hann gat þess jafnframt að 80% þeirra sem væru á atvinnuleysiskrá væru ófaglært fólk sem treysti á þetta tækifæri.
Árni sagði það langt í frá að álverið væri eina verkefnið sem verið væri að vinna í. Nefndi hann í því sambandi meðal annars uppbygginu í ferðaþjónustu en á síðustu fimm árum hefði verið fjárfest fyrir meira en 2 milljarða króna í verkefnum henni tengdri á svæðinu.
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi D-lista minnti á að á vegum SSS væri starfandi Atvinnuráð Suðurnesja. Í því sætu bæjarstjórar á Suðurnesjum en hlutverk ráðsins væri að ýta á eftir hugmyndum að verkefnum í atvinnumálum. Það væri sá samstarfsvettvangur sem Sveindís væri að lýsa eftir.
Atvinnuleysistölurnar á Suðurnesjum vaxa það hratt þessa dagana, reyndar svo að fólk næt vart að henda reiður á tölu atvinnulausra.
Þannig nefndi Árni Sigfússon sínu máli að 1400 manns væru nú atvinnulausir á svæðinu. Sveindís nefndi ríflega 1500 og Ólafur Thordarsen, bæjarfulltrúi, nefndi 1600 manns. Staðreyndin er hins vegar sú að 1752 eru skráðir atvinnulausir í dag.
----
VFmynd: Frá framkvæmdum á álverslóðinni í Helguvík.