Bygg
Bygg

Fréttir

Segir af sér embætti forseta bæjarstjórnar
Mánudagur 28. janúar 2013 kl. 15:32

Segir af sér embætti forseta bæjarstjórnar

Inga Sigrún Atladóttir hefur óskað eftir að segja af sér embætti forseta bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum í samræmi við 30.gr. sveitarstjórnarlaga. Ástæðuna segir hún vera annir og álag vegna framboðs til alþingiskosninga.

„Auk þess sem ég tel farsælla að ég sé ekki talsmaður bæjarstjórnar á meðan ég stend í kosningabaráttu á öðrum vettvangi,“ segir í bókun og tillögu sem hún lagði fram á síðasta fundi bæjarstjórnar.

Inga Sigrún lagið jafnframt til að Oddur Ragnar Þórðarson verði forseti bæjarstjórnar sveitarfélagsins. Tillagan er samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Þar sem Oddur Ragnar Þórðarson hefur verið kjörinn forseti bæjarstjórnar er lagt til að í hans stað sem annar varaforseti bæjarstjórnar verði kjörin Sveindís Skúladóttir. Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Bergur Brynjar Álfþórsson bæjarfulltrúi lagið fram svohljóðandi bókun:

„Undirritaður lýsir furðu sinni á því að fráfarandi forseti telji farsælt að hún sé ekki talsmaður bæjarstjórnar í aðdraganda þingkosninga en skuli samt ætla að vera talsmaður bæjarstjórnar á mikilvægasta vettvangi samstarfs sveitarfélaga á Suðurnesjum“.

Bílakjarninn
Bílakjarninn