Segir að Reykjanesbær eigi að ráða við skuldir
Þórir Ólafsson, formaður Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaganna, telur að þó að skuldir Reykjanesbæjar séu mjög miklar eigi sveitarfélagið að geta ráðið við þær. Skuldahlutfall bæjarsjóðs var 257% af tekjum um síðustu áramót. Þetta kemur fram á mbl.is.
Ný sveitarstjórnarlög tóku gildi í ársbyrjun 2012, en samkvæmt þeim má skuldahlutfall sveitarfélaganna ekki vera hærra en 150%. Sveitarfélög sem ekki uppfylla þetta ákvæði þurfa að skila Eftirlitsnefndinni áætlun um hvernig og hvenær þau ætla að ná þessu hlutfalli niður í 150%. 39 sveitarfélög þurftu að senda Eftirlitsnefndinni aðlögunaráætlun vegna þessa, m.a. Reykjanesbær.
Þórir segir að Reykjanesbær og tvö önnur sveitarfélög hafi sent nefndinni áætlanir sem ekki hafi verið samþykktar eða óskað eftir frekari upplýsingum um einstök atriði. Hann segir að nefndin og sveitarfélögin séu að fara betur yfir þessa hluti og hann á ekki von á að það taki langan tíma fyrir nefndina að samþykkja nýjar áætlanir frá sveitarfélögunum.
Bæjarsjóður Reykjanesbæjar skuldar 22,3 milljarða og samstaðan öll skuldar 37,5 milljarða. Skuldahlutfall bæjarsjóðs er 257%. Þórir segir að þetta séu miklar skuldir, en hann segist telja að sveitarfélagið ráði við þær og sé sjálfbært. Nefndin hafi ekki talið ástæðu til að grípa inn í fjármál Reykjanesbæjar. Þá heldur Þórir því fram að eitt af því sem valdi Reykjanesbæ erfiðleikum séu miklar skuldir hafnarsjóðs, en sjóðurinn hefur verið rekinn með halla undanfarin ár.
Eftir að Álftanes sameinaðist Garðabæ er Sandgerði skuldugasta sveitarfélag landsins, en skuldahlutfall bæjarsjóðs var 275% um síðustu áramót. Þar á eftir koma Reykjanesbær og Fjarðabyggð með 257%.