Securitas og Vogar gera samning
Sveitarfélagið Vogar hefur bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem gengið hafa til samstarfs við Securitas í öryggismálum. Samkvæmt samningi sem undirritaður var fyrir helgi verða öryggiskerfi allra stofnana sveitarfélagsins tengd stjórnstöð Securitas og munu öryggisverðir fyrirtæksins á Reykjanesi sinna útköllum ef þörf krefur.
Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samningsins en á henni eru Magnús Reyr Agnarsson, þjónustustjóri gæslusviðs Securitas Reykjanesi, Eirný Valsdóttir, bæjarritari SveitarfélagsinsVoga, og Kjartan Már Kjartansson, framkvæmdastjóri Securitas Reykjanesi.