Sautján skipverjar veikir um borð í grindvískum togara í Eyjum
Heilbrigðisstarfsfólk í Vestmannaeyjum fór í gærkvöldi um borð í togarann Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 í Vestmannaeyjahöfn.
Fréttavefurinn Tígull greinir frá því að nokkrir úr áhöfn togarans voru orðnir veikir og var óskað eftir lækni um borð. Segir að tveir til þrír úr áhöfninni væru veikir og vildu þeir láta kanna hvort um COVID-19 smit væri að ræða.
Tígull náði tali af Þórir Rúnari Geirssyni hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sem var staddur á bryggjunni og sagði hann að um varúðarráðstöfun væri að ræða vegna Kórónu veirunnar.
Uppfært: Að neðan eru upplýsingar úr tilkynningu lögreglunnar í Vestmannaeyjum
Í gærkvöldi tilkynnti landhelgisgæslan lögreglu að von væri á fiskiskipi til Vestmannaeyja þar sem væru talsverð veikindi um borð. Sautján menn af 26 höfðu verið veikir og þrír mikið veikir.
Hafnarsvæðinu var lokað fyrir almenningi og fóru heilbrigðisstarfsmenn um borð þegar skipið hafði lagst að bryggju um ellefuleytið en forgangsmál var að sinna sjúklingunum.
Tekin voru sýni vegna COVID-19 úr sjö skipverjum og fjórir skipverjar voru teknir í land og var komið fyrir í farsóttarhúsi vegna veikinda þeirra. Aðrir skipverjar eru um borð í skipinu í svokallaðri biðkví á meðan málið er til rannsóknar og fer enginn frá borði fyrr en niðurstaða liggur fyrir.
Ekki hefur verið staðfest að veikindin stafi af smiti vegna kórónaveirunnar heldur er um varúðarráðstöfun að ræða vegna útbreiðslu hennar. Þegar niðurstaða vegna rannsóknar sýnanna liggur fyrir verða frekari ákvarðanir teknar. Skipverjarnir hafa greiðan aðgang að læknum heilsugæslunnar og er vel sinnt.
Ekki COVID-19 hjá áhöfn togarans
Uppfært 20. mars: Niðurstöður sýna sem tekin hafa verið af skipverjum um borð í togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255 frá Grindavík leiða það í ljós að ekki er um Covid 19 veiru að ræða.
Togarinn kom til Vestmannaeyja seint í gærkvöldi þar sem margir úr áhöfninni sýndu einkenni veikinda og þrír voru mikið veikir.