Fréttir

Sautján óku of hratt - einn á 149 km
Mánudagur 8. júní 2015 kl. 13:22

Sautján óku of hratt - einn á 149 km

- einn með ævilanga ökuleyfissviptingu stöðvaður.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært sautján ökumenn fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 149 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ökumaðurinn gat ekki framvísað ökuskírteini þegar um það var beðið. 

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af átta bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Fleira var athugavert við ökumenn og bifreiðar, því einn sem stöðvaður var við hefðbundið eftirlit reyndist vera sviptur ökuréttindum ævilangt. Annar ók með filmur í fremri hliðarrúðum og var bifreiðin því boðuð í skoðun. Sá þriðji ók á fjórum negldum hjólbörðum og þurfti að greiða 20 þúsund króna sekt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn