Sautján nemendur af Suðurnesjum útskrifast frá Háskólanum á Akureyri
 Sautján nemendur sem stunda fjarnám við Háskólann á Akureyri verða útskrifaðir við hátíðlega athöfn í Keflavíkurkirkju á 17. júní. Er þetta í fyrsta sinn sem nemendur eru útskrifaðir af háskólastigi á Suðurnesjum. Nemendurnir hafa stundað fjarnámið í gegnum fjarfundabúnað sem staðsettur er í miðstöð símenntunar, en nemendurnir hafa námsaðstöðu hjá MSS. Níu nemendur útskrifast úr hjúkrunarfræði og 8 úr rekstrar- og viðskiptafræði.
Sautján nemendur sem stunda fjarnám við Háskólann á Akureyri verða útskrifaðir við hátíðlega athöfn í Keflavíkurkirkju á 17. júní. Er þetta í fyrsta sinn sem nemendur eru útskrifaðir af háskólastigi á Suðurnesjum. Nemendurnir hafa stundað fjarnámið í gegnum fjarfundabúnað sem staðsettur er í miðstöð símenntunar, en nemendurnir hafa námsaðstöðu hjá MSS. Níu nemendur útskrifast úr hjúkrunarfræði og 8 úr rekstrar- og viðskiptafræði.Kaffisamsæti verður í Kirkjulundi eftir útskriftina í boði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Útskriftin hefst klukkan 10:30.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				