Fimmtudagur 13. júní 2002 kl. 09:00
Sautján ára ökumaður á 160 km. hraða

Sautján ára ökumaður var tekinn á 160 km. hraða á Garðvegi í gærkvöldi. Átta aðrir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Keflavík, samkvæmt fréttasíma lögreglunnar í Keflavík.