Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sautján ára á 147 km hraða
Föstudagur 23. mars 2018 kl. 10:34

Sautján ára á 147 km hraða

Sautján ára ökumaður mældist á 147 km hraða í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hafði lögreglan einnig afskipti af fimm ökumönnum til viðbótar og voru þeir allir kærðir fyrir hraðakstur.

Þá tók lögregla sex ökumenn úr umferð vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.
Loks voru skráningarnúmer fjarlægð af sjö bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.

Public deli
Public deli