Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sat föst ofan á vegriði
Föstudagur 23. janúar 2015 kl. 14:40

Sat föst ofan á vegriði

– á Reykjanesbraut

Allmörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbraut með þeim afleiðingum að hún lenti milli akreina og hafnaði ofan á vegriði þar sem hún sat föst. Fjarlægja þurfti hana með dráttarbifreið.

Annar ökumaður ók á ljósastaur í Keflavík. Þá var olíuflutningabifreið ekið á girðingu við öryggishlið við Keflavíkurflugvöll. Loks ók ökumaður á grindverk við hafnarbakka Keflavíkurhafnar. Þá urðu fáeinir minni háttar árekstrar.

Public deli
Public deli