Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sara þarf ekki stera til að ná langt
Miðvikudagur 15. febrúar 2017 kl. 15:22

Sara þarf ekki stera til að ná langt

- Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir í ítarlegu viðtali við Suðurnesjamagasín

Suðurnesjamagasín er vikulegur þáttur Víkurfrétta þar sem fjallað er um menningu, mannlíf og atvinnulífið á Suðurnesjum. Í þessari viku beinum við sjónum okkar að einni af okkar sterkustu íþróttakonum, Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur. Hún er í fremstu röð í heiminum í Crossfit. Ítarlegt viðtal við hana er í þættinum annað kvöld, fimmtudagskvöld.
 
Þá tökum við hús á Fjölsmiðjunni í Reykjanesbæ. Þar er meðal annars stærsti nytjamarkaður Suðurnesja og unnið gott starf með ungu fólki við að koma því á beinu brautina.
 
Í þætti vikunnar eru einnig helstu tíðindi frá Suðurnesjum og við sláumst í för með tónlistarmanninum Jóni Jónssyni í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
 
Suðurnesjamagasín er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum kl. 20 og aftur kl. 22.  Þátturinn er einnig sýndur á vf.is.
 

Public deli
Public deli