Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sandgerðisbær veitir styrki vegna öryggishnapps
Þriðjudagur 27. febrúar 2007 kl. 17:05

Sandgerðisbær veitir styrki vegna öryggishnapps

Sandgerðisbær hefur ákveðið að bjóða eldri borgurum og öryrkjum styrk til að fá sér öryggishnappinn frá Securitas. Styrkurinn getur numið meira en helmingi af þeim kostnaði sem fellur á hvern einstakling. Gert er ráð fyrir því að kostnaður bæjarfélagsins vegna uppsetningu á hnappinum verði allt að 3,3 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sandgerðisbæ. Þar segir aukinheldur:


Öryggishnappur Securitas er einfalt og fyrirferðarlítið öryggistæki sem borið er á úlnlið eða um háls. Verði óhapp, slys eða veikindi er þrýst á hnappinn og berast þá samstundis boð til Neyðarlínunnar 112 og beint samband opnast við sérþjálfað starfsfólk.


Á fundi bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar í haust var samþykkt samhljóða að allir íbúar bæjarins 67 ára og eldri og auk þess öryrkjar sem óska eftir öryggishnappi fái styrk frá bæjarfélaginu. Bærinn mun auk þess standa straum af kostnaði vegna uppsetningar. Eftir stendur aðeins áskrift að hnappinum, 1.350 krónur, sem notandinn greiðir mánaðarlega.


Á annað þúsund öryggishnappa eru í notkun á landinu öllu og eru notendur fyrst og fremst eldri borgarar. Mikil öryggistilfinning er því samfara að hafa hnappinn við höndina, ekki síst er hefur hann orðið til að draga úr áhyggjum aðstandenda sem geta verið þess fullvissir að þeirra nánustu eru öllum stundum í öruggum höndum ef eitthvað kemur upp á.


Öryggishnappurinn er einfalt og fyrirferðarlitið tæki sem fest er á úlnlið eða borið um hálsinn. Verði óhapp, veikindi eða slys þarf eigandinn ekki að gera annað en að þrýsta á hnappinn og berast þá samstundis boð til stjórnstöðvar Securitas sem er Neyðarlínan 112 og jafnframt opnast beint talsamband við sérþjálfað starfsfólk. Boð eru samstundis send til öryggisvarðar sem er með lykil að heimili þess sem er í vanda staddur og kemst þannig að honum án nokkurra vandkvæða. Sjúkrabíll og jafnvel læknir er svo sendur á vettvang ef þörf krefur auk þess sem haft er samband við aðstandendur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024