Sandgerðisbær fagnar fyrirætlunum um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfis
„Bæjarráð Sandgerðisbæjar fagnar þeim fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar að taka fiskveiðistjórnunarkerfið til endurskoðunar. Sandgerðisbær byggðist upp í kringum sjávarsókn og sá fjöldi fólks sem þar veiddi og vann fisk á 20. öldinni lagði grunninn að aflaheimildum samfélagsins. Sanngjörn endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu er því gleðiefni og gefur Sandgerðingum von um réttmæta leiðréttingu.“ Þetta segir í bókun meirihluta bæjarráðs Sandgerðis á fundi í gær.
Þá segir í fundargerð frá fundi bæjarráðs að Sandgerðisbær hafi án efa orðið fyrir mestu breytingum aflaheimilda og á lönduðum afla frá því að kvótakerfið var tekið upp. Mikið af upphaflegum veiðiheimildum hefur færst frá bæjarfélaginu á liðnum árum og sérstaklega þegar öflug sjávarútvegs fyrirtæki voru seld eða færð til annarra útgerðarfélaga.
Bæjarfulltrúar Sandgerðisbæjar leggja hinsvegar þunga áherslu á að þau sjávarútvegsfyrirtæki sem nú eru staðsett í bæjarfélaginu og eru í dag að sinna vinnslu í tengslum við Sandgerðishöfn hafa með elju og ærnum kostnaði unnið aftur hluta af þeim heimildum sem hér komu til löndunar á árum áður.
Bæjarfulltrúar Sandgerðisbæjar telja hinsvegar endurskoðun á umræddu kerfi eðlilegar. Ekki er verið að leggja mat á hugmyndir ríkisvaldsins um fyrningaleið enda hafa slíkar útfærslur ekki séð dagsins ljós.
Hinsvegar hafa komið fram nýjar hugmyndir um strandveiðar sem gætu gefið útgerðaraðilum í og við Sandgerðishöfn möguleika á betri afkomu á næstu árum.
Bókun bæjarráðs frá 471. fundi byggir á slíkri nálgun en verður að byggja á sátt við þá aðila sem hafa með veiðiheimildir að gera í núverandi kvóta kerfi. Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar og aflar þjóðinni drjúgan hluta af gjaldeyristekjum samfélagsins. Varhugavert er því að setja atvinnugreinina í uppnám við það eitt að ganga til alþingiskosninga.
Tillögur eða hugmyndir ríkisvaldsins um breytingar verða að miða við styrkleika og stöðu þjóðarbúsins hverju sinni. Slík endurskoðun þarf að hafa það að markmiði að skapa betri og vonandi endanlega sátt um kerfið til framtíðar. Sáttin á að byggja á nánum tengslum útgerða við byggðarlög landsins að mati meirihluta bæjarfulltrúa Sandgerðisbæjar, segja þeir Óskar Gunnarsson og Sigurður Valur Ásbjarnarson í fundargerð bæjarráðs Sandgerðis.